fimmtudagur, ágúst 09, 2007
14.júlí 2007 var stóri dagurinn
Þann 14. júlí s.l. giftist ég Kjartani og hann kvæntist mér við fallega athöfn sem haldin var á grísku eyjunni Santorini, gullfallegur staður með stórfenglegu útsýni. Hveitibrauðsdögunum var varið bæði á Santorini og Krít. Ferðin var rómantísk, ævintýraleg og sú lang skemmtilegasta sem við höfum farið í. Við kynntum alveg fullt af yndislegu fólki sem setti sinn svip á ferðina og gerði hana enn eftirminnilegri. Við ferðuðumst heilmikið á Krít og skoðuðum fornminjar. Við slöppuðum af og höfðum það notalegt á fallegri strönd. Við upplifðum annars vegar stemminguna í Chania þar sem við gistum á hóteli sem staðsett var í miðbænum og hins vegar sveitasælu þar sem við gistum á hóteli/heimili sem staðsett var upp í fjöllunum. Síðast en ekki síst upplifðum við stórkostlega daga á Santorini þar sem við giftum okkur. Þar gistum við á lúxus hóteli með heitum potti inn í herberginu okkar og stókostlegu útsýni hvert sem við fórum. Við giftum okkur við sólarlag, litirnir á himninum voru kyngimagnaðir. Við vorum tvö og þetta var okkar stund, dásamlega falleg.
miðvikudagur, júní 06, 2007
Tilkynning !
Því miður tilkynnum við brúðhjónin hér með að brúðkaupsveislunni er frestað þann sjöunda sjöunda núll sjö. Ákvörðunin er tekin af vel hugsuðu ráði þar sem óheppilegar aðstæður innan bæði fjölskyldu brúðar og brúðguma hafa valdið því að við brúðhjónin vorum farin að kvíða því allverulega að mæta í eigið brúðkaup. Okkur langar ekki að gifta okkur í þannig aðstæðum þar sem brúðkaup er gleðilegur atburður. Við munum í staðinn skipuleggja brúðkaup seinna við heppilegri aðstæður og erum við strax farin að hlakka til giftingarinnar eins og vera ber. Nánari upplýsingar verða veittar síðar
En af gleðilegri fréttum langar mig að monta mig! Ég er búin að skila bs ritgerðinni ógurlegu og fyrir hana fékk ég 9 sem var hæsta einkunninn. :) Ég mun svo útskrifast þann 16. júní n.k. Ég byrjaði að vinna strax eftir að ég var búin að skila öllu af mér og líkar stórvel að vinna hér hjá Afli. Við brúðhjónin skelltum okkur upp á snæfellsjökul um hvítasunnuhelgina þar sem við gengum upp jökulinn og renndum okkur svo bara niður á rassinum, það tók svona 5 tíma að fara upp og niður og fannst okkur þetta hið fínasta hvítasunnuafrek.
Svo er ýmislegt skemmtilegt framundan því það er sko aldrei lognmolla hérna hjá okkur hjónunum.
föstudagur, apríl 27, 2007
7 dagar í bs ritgerðarskil
Það er ekki hægt að segja annað en að við Kjartan séum dugnaðarforkar. Kjartan er í meira en 100% vinnu og ég er í verknámi frá 8-16 á daginn. Nú er svo komin sá tími þar sem við þurfum að verja heilu kvöldunum í að læra, Kjartan undir lögfræðipróf (ásamt því að semja próf og undirbúa sig fyrir kennsluna) og ég að klára bs ritgerðina mína, auk þess eru svona hversdagslegir hlutir eins og að reka heimili, barnauppeldi, mæta á karate og dansæfingar og að skipuleggja brúðkaup. Jæja þetta er svo sem kannski ekki meira en það sem aðrir eru að gera en okkur finnst við standa okkur ægilega vel. (Maður verður nú að hrósa sér svona af og til). Núna á þriðjudaginn síðasta fór ég í tvö próf af sitt hvoru taginu. Annað var lokaklíník svokölluð þar sem ég fékk viku til að meta og greina skjólstæðing sem ég hafði ekki séð áður, setja upp skýrslu með öllu tilheyrandi, skoðun, markmiðum og meðferðaráætlun. Nú síðan kynnti ég niðurstöður mínar og var yfirheyrð og dæmd eftir frammistöðu minni í prófinu. Vikan sem fór í að skoða skjólstæðingin var frekar strembin þar sem ég þurfti að leggja fyrir próf sem ég hef aldrei lagt fyrir áður og er svona soldið mál að leggja fyrir í fyrsta skiptið svo það var smá stress. En jæja ég er búin að fá að vita að ég náði þessu prófi. Seinna þennan sama dag eða um kvöldið fór ég í gráðun í Karate og varð mér úti um gulabeltið. Þannig að eins og ég segi það vantar ekki verkefnin á þetta heimili. EN núna er það bs ritgerðin ég er að baslast við að klára sem mest svo ég geti sent leiðbeinandanum mínum afraksturinn í kvöld en sem stendur er ritgerðin 8.400 orð og spannar 53 blaðsíður.....og hún mun sennilega lengjast um svona 5-10 í viðbót áður en kvöldinu líkur....en þá er líka best að ég hætti að eyða tímanum í að blogga og fari að drífa þetta af. Adios amigos
laugardagur, apríl 14, 2007
Páskar, nýr ískápur og brúðkaupsundirbúningur
Páskarnir liðu hratt. Þeir byrjuðu eiginlega á því að á Pálmasunnudag þá máluðum við einn vegg í svefnherberginu okkar appelsínugulan! já það er soldið crazy en okkur finnst það svaka flott. Síðan var ferming á skírdag hjá henni Guðbjörgu Regínu frænku, það var fín veisla og góðar veitingar og svo var óvænt skemmtiatriði þar sem fermingarbarnið mætti með sínum dansfélaga og dansaði djæf og cha cha cha. Alveg stórskemmtileg uppákoma til að brjóta upp þetta hefðbundna veisluform. Á laugardeginum skelltum við okkur öll á skauta og það vantar sko ekki hæfileikana þar. Við fjölskyldan hérna á Laugateignum bjuggum til páskaeggin sjálf þetta árið, en ég ólst upp við það að búa sjálf til páskaegg á páskunum og þykir afar vænt um þær minningar. Við ákváðum að gera smá tilraun, þar sem prinsessan á bænum hefur óskað eftir að allt sé bleikt þetta árið, þá gerðum við bleikt súkkulaðipáskaegg handa henni. Það vakti sko lukku og fannst henni það páskaegg best (hvaða þriggja ára prinsessu myndi ekki finnast það). Til að hafa þetta algjört dekur þá var inn í bleika páskaegginu lítil hafmeyja en það er jú framtíðardraumurinn hennar Freyju að verða bleik hafmeyja. Hún var sem sagt alsæl með þetta allt saman. Nú svo var unnið í B.S rannsókninni og prófalestur hjá Kjartani svona inn á milli.
Svona að lokum þá enduðum við páskana svona formlega með því að kaupa okkur nýjan ísskáp. Þeir sem eru reglulegir gestir hér á heimilinu vita að síðasta árið höfum við verið með ískáp sem er af minnstu gerð og frystirinn var svo lítill að það var eiginlega bara hægt að setja einn pakka af kjúklingabringum inn í hann og þá var nánast ekki hægt að loka honum. Nú eru svo sannarlega breyttir tímar! Nýji ísskápurinn er 2 m hár sem er hærra en gengur og gerist, hann er stálburstaður í stíl við uppþvottavélina okkar sem við fengum okkur um jólin. Það er svaka mikið frystipláss og þó við séum búin að fara tvisvar í bónus og leggja okkur fram við að kaupa sem mest til að frysta í honum er hann langt frá því að vera fullur. Þetta er bara alveg yndislegt. Eins og þið getið lesið þá er aldrei lognmolla á þessum bæ. Framundan eru próf hjá Kjartani í refsirétti og opinberu réttarfari, ég er að fara í lokaklíník í næstu og þarnæstu viku og þarf að klára B.S. ritgerðina og svo er brúðkaupsundirbúningurinn í fullum gangi.
Það er að komast heildarmynd á brúðkaupið og hefur Sigrún Sól tengdamamma verið einstaklega hjálpleg við að hjálpa okkur að skipuleggja herlegheitin. Þetta verður sannkallað ævintýri fyrir þá sem ætla að koma. Dagskrá mun liggja fyrir eftir svona mánuð. Við munum áætla matseðla með kokkinum á þriðjudaginn n.k. en það verður algjör meistarakokkur sem mun elda fyrir okkur. Það verður hann Guðmundur Ragnarsson sem er vanur að elda fyrir fínustu veislur landsins, forseta og embættismennn. Síðan er bakarinn sem mun sjá um brúðartertuna það verður hann Hafliði Ragnarsson sem er þrefaldur íslandsmeistari í kökuskreytingum og á ýmsa bakara og súkkulaðigerðar titla í sínu safni. Svo engin mun verða svangur í þessu brúðkaupi. Svo erum við komin með alveg frábæran veislustjóra, það er æskuvinur Kjartans hann Karl Jóhann eða Kalli eins og hann er kallaður. Kalli er sögukennari eins og Kjartan og ég treysti honum alveg 100% til að halda vel utan um veislustjórahlutverkið. Já eins og ég segi það er ekki lognmolla hér :)
mánudagur, mars 26, 2007
Freyja á hestbaki
sunnudagur, mars 11, 2007
Fleiri myndir
Magga frænka vill fleiri myndir svo hér eru nokkrar í viðbót...ein af mér og Halla, síðan er mynd sem er tekin áður en Halli fæddist og að lokum er mynd af Kjartani nýbúin að veiða lunda


laugardagur, mars 10, 2007
meiri afmælis prufu bakstur... og fleira
Eldri skrif
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júní 2007
ágúst 2007

|