![]() |
Ég elska alla sem við kemur hönnun, hvort sem það er fyrir net, prent eða eitthvað annað. Ég get gert allt, séð um grafíska hönnun sem og tæknilegu hliðina við forritun og upsettningu.
Hafið er líklega ein flottasta fiskbúð landsins og þegar Eyjó fiskiprins leitaði til mín eftir vefsíðu sem væri einföld og falleg þá græjaði ég það fyrir hann. Þetta er útgáfa 2.0.
Fyrir þetta framsækna og skemmtilega símafyrirtæki gerði ég fyrst hugmynd að merki og útliti á fyrirframgreidd símkort. Síðan gerði ég allt hitt í framhaldinu líka.
Sem starfsmaður KKÍ geri ég stundum auglýsingar fyrir komandi leiki og viðburði.
Óháð fréttavefsíða sem fjallar um íslenskan körfubolta og erlendis. Hugmynd að nýju útliti vefsins sem ég gerði og á eftir að bjóða þeim að nota.
Vefsíða fyrir arkitekt sem inniheldur mikið magn af verkum og er mjög stór. Gott leiðarkerfi einfaldar notendum að rata fram og til baka um síðuna.
Vefur sem heldur utanum veiði og veiðiferðir, afla og beitur. Tvær hugmyndir, ein upphafleg hugmynd og svo sú sem var gerð á endanum + logo.
Sem dyggur aðdándi þessa knattspyrnuliðs frá Liverpool, hef ég gert flashborða fyrir strákana á kop.is gegn því að þeir skrifi áfram góðar greinar á síðuna.
Ebba Guðný hafði samband og bað mig um að setja síðu upp sem búið var að hanna. Hún inniheldur uppskriftir og kennslumynbönd um hollan mat.
Lógó, vefsíður, bolir, umbúðir, plaköt, umslög eða videó, hér kennir ýmisa grasa og hér er hitt og þetta ... aðalega þetta.