BHSÍ Suðurland

föstudagur, 16. apríl 2010

Æfingar

Við óformleg æfingastjórn Bhsí -Suðurland höfum ákveðið að auglýsa ekki æfingar núna alveg á næstunni, við allar hérna austanlands þurfum að sinna útköllum og gæslu reglulega vegna Eldgoss.

Ég set inn blogg um leið og fer að róast og auglýsi þá æfingu. Þangað til er félögum bent á Reykjavíkur liðið, þar eru allar upplýsingar að finna inni á www.bhsi.is

Góðar stundir :)
föstudagur, apríl 16, 2010

0 skilaboð



laugardagur, 10. apríl 2010

Æfing laugardaginn 10. apríl


Æfing var haldin í nágrenni Hveragerðis 10. apríl. Mættir voru Drífa og Lúkas, Björk og Krummi, Morris og Jóhanna, Sandra og Ronja og Aron fígúrant sem fær litlu tíkina sína í næstu viku :)

Æft var á Ölkelduhálsi í einhverri þeirri svörtustu þoku sem ég hef séð, rigningu og ógeðslegu roki ! maður þarf víst að æfa allar aðstæður !

Byrjuðum á Ronju og þar sem hún er ofboðslega snögg að læra ákváðum við að prufa að taka óséð fyrir hana. Venjulega höfum við byrjað á einu úthlaupi til að kveikja aðeins í henni en það þarf ekkert, hún hljóp bara beint út og hljóp beint inn í lykt. Hún er byrjuð að gelta hjá fígúrant en gerir það enn að skipun. Alltaf jafn kát og góð hún Ronja, verður gaman að fylgjast með henni í sumar.

Næst var Drífa hún fékk sérverkefni sem var hrapallega misskilið af "fígúrantútsetjara" sem endaði þannig að hundurinn stakk eigandann af og fann bara fólkið sem var í kílómetersfjarlægð :) hann fékk svo aðra æfingu og tók þá langa leit og gekk það glymrandi. Hann er orðinn öruggur í öllu sem hann gerir, virkilega ákveðinn og alveg hættur að hanga í rassinum á "mömmu" sinni.

Morris fékk líka leit en týndist í þokunni! en eftir smá stund og eftir spjall hjá eigandanum við álfa í smá stund birtist Morris upp úr einni holunni og hélt áfram að leita og fann og ekkert mál.

Krummi var næstur á dagskrá og auðvitað þurftum við að pína Björkina og ákváðum að gera "ofnæmispróf" á Krumma kallinum. Við létum fígúrant undir útblástursrörið á einum bíl og ætluðum að athuga hvort það myndi trufla hundinn. Nú eftir smá leit datt Krummi inn á lyktina og var nokkuð hissa á að finna mann undir bíl! en þetta truflaði hann nákvæmlega ekki neitt. Það er því skemmst frá því að segja að Krummi er ekki með ofnæmi fyrir dísel ;)

Mynd dagsins var ekki tekin í dag... var bara of leiðinlegt veður til að leyfa mynd af því að hanga á netinu...

Næsta æfing verður á Hellu/Hvolsvelli n.k fimmtudag eða laugardag ? hvað segja menn/konur ?

Bestu kveðjur
-Jóhanna
laugardagur, apríl 10, 2010

2 skilaboð



miðvikudagur, 7. apríl 2010

Leit við Emstrur


Þann 6.apríl um kl 17:30 voru hundateymi BHSÍ kölluð út vegna leitar sem stóð yfir á svæði sem afmarkaðist af Mýrdalsjökli, Markarfljóti og Mælifellssandi. Þar stóð yfir leit að 3 einstaklingum sem höfðu verið á ferðalagi á jepplingi um gosstöðvarnar, um var að ræða 2 konur og 1 karlmann. Á þessum tíma höfðu björgunarsveitir þegar fundið báðar konurnar og var þá önnur þeirra látin. Einnig var búið að finna bifreið þeirra mannlausa.

9 hundateymi fóru í útkallið á vegum BHSÍ og 1 teymi var á leiðinni frá Norðurlandi til að taka þátt í leitinni. Alls tóku um 280 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni úr 28 sveitum. Björgunarsveitir fundu karlmanninn um kl 21:30, hann var þá látinn.


Þess má geta að 2 félagar frá suðurlandinu komust á vettvang með hunda sína og hófu leit. En Björk og Krummi voru búin að vera við leit í nokkra tíma þegar Jóhanna og Morris komu að.


En að öðru, æfing verður haldin í Hveragerði n.k laugardag klukkan 11:00 mæting verður við hjálparsveitarhúsið í Hveragerði. Leiðbeinandi á æfingu verður Ingimundur. Allir velkomnir eins og alltaf :) Endilega hendið inn línu hérna ef þið ætlið að koma , nú annars er alltaf hægt að hafa samband við mig ef það er eitthvað, (868-3360) Þið eldri hundaeigendur megið taka með ykkur GPS og talstöðvar, einnig væri gott ef þið lumið á fígúröntum !


mynd dagsins er frá síðustu helgi þegar nokkrir félagar Bhsí fóru að gosstöðvunum. Áður en farið var upp á jökul tókum við léttan göngutúr í fjörunni :)


-Jóhanna


miðvikudagur, apríl 07, 2010

1 skilaboð



föstudagur, 2. apríl 2010

Hálfgerð útkallsæfing



Æfing var haldin á Eyrarbakka s.l fimmtudag mættir voru :
Hafdís og Breki, Halldór og Skuggi, Emil og Gríma, Drífa og Lúkas, Björk og Krummi, Jóhanna og Morris ásamt ungliðanum Sverri og tíkinni Heklu. Einn aukafígúrant mætti líka og var hörkuduglegur en ég man því miður ekki nafnið á honum ! en duglegur var hann :)

Æft var niður við sjó og svæðið þar er alltaf jafn skemmtilegt svona þegar ég hugsa um það þá væri ekki leiðinlegt að halda alvöru útkallsæfingu þar líkt og gert var fyrir 2 árum síðan.

Nú gömlu hundarnir eru allir á svipuðu róli og fengu þeir stóra leit. Sverrir er með unga tík sem er mjög efnileg og skemmtileg. En þau eru svona að fá að kynnast starfinu okkar og vonandi skila þau sér svo í sveitina þegar þau eru komin með aldur til :)

Nú þegar var verið að setja upp svæði fyrir Krumma, Lúkas og Breka komst allt í uppnám þegar heildarútkall kom á svæði 3 og þurfti því helmingurinn að hlaupa beinlínis í útkall. Þannig að má því segja að þetta hafi verið hálfgerð útkalls-æfing :)

Næsta æfing verður haldin í Hveragerði á mánudag klukkan 13:00 nauðsynlegur búnaður á þá æfingu er : GPS, Hundur, Talstöðvar (VHF eða Tetra, uhf gengur sennilega ekki) gott væri ef þið gætuð tekið fígúranta með ykkur, endilega kommenta hérna fyrir neðan ef þið komist :)

Tók auðvitað ekki myndavélina með á þessa æfingu en hún skal koma með næst ! mynd dagsins er því úr mínu safni :)

-Jóhanna


föstudagur, apríl 02, 2010

2 skilaboð



þriðjudagur, 30. mars 2010

Æfing fimmtudaginn 1.apríl (ekki gabb)

Æfing verður á Eyrarbakka fimmtudaginn 1. apríl klukkan 13:00 hundar, stórir sem smáir ásamt börnum og fylgifólki velkomið !

-Jóhanna :)
þriðjudagur, mars 30, 2010

0 skilaboð



sunnudagur, 28. mars 2010

Æfing fimmtudaginn 25 mars

Æfing var haldin í Gesthúsum á Selfossi s.l fimmtudag.

Mættir voru Drífa og Lúkas, Hafdís og Breki, Jóhanna og Morris, Sandra og Ronja og Aron, en hann er á leiðinni að fá sér hund á næstu dögum en á meðan hann er hundlaus er hann píndur á æfingum hjá okkur með því að liggja úti :)

Nú Drífa gat því miður ekki stoppað nema stutt því hún heldur hundanámskeið á Selfossi á fimmtudagskvöldum og tók hún því bara eitt rennsli. Lúkas er í fínu formi og er hann æfður í því núna að fá allavega 2 fígúranta og helst fleiri. Það gengur bara mjög vel.

Breki fékk svæði í skóginum en þar hafði "týnst" einn góðvinur Selfyssinga og vinkona hans, og var því Breki látinn leita ! nú hann var ekki lengi að finna vinkonuna en vinurinn lá ofaní heitapottinum og vissi Breki ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið fyrst en tók svo bringselið og skilaði því fínt.

Ronja hennar Söndru kom líka en hún kom seinast á æfingu hjá okkur þegar við héldum rústaæfingu undir Eyjafjöllunum, þar sáum við að þar væri tík sem vert væri að halda í ! þvílíkt leikglöð, stillt og prúð. Ronja fékk fyrst nokkur úthlaup en fljótlega fórum við yfir í að óséð því hitt var einfaldlega of auðvelt fyrir hana. Sandra eigandi hennar fékk heimaverkefni á seinustu æfingu, að kenna Ronju að gelta og á æfingunni var hún farin að gelta hjá fígúrantinum. Frábærlega efnilegt teymi hér á ferð.

Nú Aron stóð sig líka vel, alveg ótrúlega gaman að hafa fólk á æfingum sem er duglegt að hjálpa til ! ekki sakar ef það er hresst og skemmtilegt í kaupbæti :)

Nú Morris er í "leyniverkefni" eða fikti eins og einhverjir myndu eflaust kalla það, og vonandi kemur myndband af því síðar :)

Ég reyndi eins og ég gat að ná mynd úr símanum mínum sem tekin var á æfingunni... en tæknin var eitthvað að stríða mér og því stel ég bara annari mynd af Ronju ;)

Annars erum við að hugsa um að hafa æfingu á fimmtudaginn n.k á Eyrarbakka klukkan 13:00.

Bestu kveðjur
-Jóhanna


Ronja

sunnudagur, mars 28, 2010

0 skilaboð



þriðjudagur, 23. mars 2010

Æfing næsta fimmtudag

Komið öll heil og sæl nær og fjær :)

Æfing verður haldin næsta fimmtudag nánar tiltekið 25 mars klukkan 17:00. Það má koma fyrr ef fólk hefur tök á ! ég mun vera komin aðeins fyrr til að skoða svæðið okkar.

Mæting er á planið við Gesthús á Selfossi.

Bestu kveðjur
-Jóhanna

þriðjudagur, mars 23, 2010

0 skilaboð



október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 október 2008 nóvember 2008 mars 2009 apríl 2009 maí 2009 júní 2009 mars 2010 apríl 2010