| BHSÍ Suðurland |
föstudagur, 16. apríl 2010
|
Æfingar
|
laugardagur, 10. apríl 2010
|
Æfing laugardaginn 10. apríl
|
miðvikudagur, 7. apríl 2010
|
Leit við Emstrur
Þann 6.apríl um kl 17:30 voru hundateymi BHSÍ kölluð út vegna leitar sem stóð yfir á svæði sem afmarkaðist af Mýrdalsjökli, Markarfljóti og Mælifellssandi. Þar stóð yfir leit að 3 einstaklingum sem höfðu verið á ferðalagi á jepplingi um gosstöðvarnar, um var að ræða 2 konur og 1 karlmann. Á þessum tíma höfðu björgunarsveitir þegar fundið báðar konurnar og var þá önnur þeirra látin. Einnig var búið að finna bifreið þeirra mannlausa. 9 hundateymi fóru í útkallið á vegum BHSÍ og 1 teymi var á leiðinni frá Norðurlandi til að taka þátt í leitinni. Alls tóku um 280 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni úr 28 sveitum. Björgunarsveitir fundu karlmanninn um kl 21:30, hann var þá látinn. Þess má geta að 2 félagar frá suðurlandinu komust á vettvang með hunda sína og hófu leit. En Björk og Krummi voru búin að vera við leit í nokkra tíma þegar Jóhanna og Morris komu að. En að öðru, æfing verður haldin í Hveragerði n.k laugardag klukkan 11:00 mæting verður við hjálparsveitarhúsið í Hveragerði. Leiðbeinandi á æfingu verður Ingimundur. Allir velkomnir eins og alltaf :) Endilega hendið inn línu hérna ef þið ætlið að koma , nú annars er alltaf hægt að hafa samband við mig ef það er eitthvað, (868-3360) Þið eldri hundaeigendur megið taka með ykkur GPS og talstöðvar, einnig væri gott ef þið lumið á fígúröntum ! mynd dagsins er frá síðustu helgi þegar nokkrir félagar Bhsí fóru að gosstöðvunum. Áður en farið var upp á jökul tókum við léttan göngutúr í fjörunni :) -Jóhanna |
föstudagur, 2. apríl 2010
|
Hálfgerð útkallsæfing
október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 október 2008 nóvember 2008 mars 2009 apríl 2009 maí 2009 júní 2009 mars 2010 apríl 2010 |