BHSÍ Suðurland

þriðjudagur, 23. júní 2009

Sumarnámskeið á Gufuskálum

Annað sumarnámskeið ársins var haldið um sl. helgi á Gufuskálum.
22 félagar úr Björgunarhundasveit Íslands (BHSÍ) voru þar við æfingar og vorum við nokkuð heppin með veður en þó var hávaðarok og rigning þegar Anna Sigga og Kópur voru í prófi seinnipartinn á laugardaginn. Reyndar mátti sjá mjög íslenskar aðstæður í veðri hjá okkur þar sem sólin skein öðru megin við svæðið okkar en það hellrigndi hinum megin við svæðið og við í þokkalegu veðri þarna mitt á milli










Biggi og Breki
Á námskeiðinu voru hundar á öllum stigum þjálfunar þ.e. þarna voru teymi sem eru að stíga sín fyrstu skref í víðavangsleit og einnig voru þarna fullþjálfaðir leitarhundar. Allir sem mættir voru á námskeið voru í sólskinsskapi og flestir ef ekki bara allir sammála um að þetta væri alveg frábært námskeið!!


Á Föstudeginum var farið með hundana á rústasvæðið og fengu þeir sem vildu æfa leit í rústunum..
Þeir sem ekki leituðu voru með hundana í umhverfisþjálfun á svæðinu.

Hluti hópsins á rústasvæðinu
Við viljum óska félögum okkar sem tóku próf og stóðust þau til hamingju með árangurinn.



Anna Sigga og Kópur A-endurmat
Hörður og Skvísa A-próf
Skúli og Patton A-próf
Drífa og Lúkas C-próf

Drífa tekur við viðurkenningu fyrir C-próf
Takk kærlega allir félagar fyrir Frábært námskeið !
þriðjudagur, júní 23, 2009

6 skilaboð



mánudagur, 8. júní 2009

Æfing í blíðskaparveðri í Hraungerðishreppi til forna

Það má með sanni segja að vel hafi verið mætt á æfingu Bhsí suðurland nú í kvöld, alls voru 10 manns, eða 6 hundamenn og nokkrir yngri meðlimir Bhsí Junior :)

Það eru komnir nokkrir nýir hundar til okkar og líst okkur "gamla" liðinu vel á eigendurnir eru áhugasamir og duglegir fígúrantar ! Gömlu hundunum fannst þetta mikið skemmtilegra að fá loksins að leita að einhverjum öðrum heldur en okkur kellingunum sem er alltaf sama skítalyktin af :)
En mættir á æfinguna í dag voru : Björk og Krummi, Ingi Magnús og Rökkvi, Jóhanna og Morris, Drífa og Lúkas, Rósa og Anja og Garðar og Ísold.
Björk og Krummi eru í "séræfingum" ef hægt er að segja svo, en Björk er að fá Krumma til að vera ákveðnari að koma til sín að skila bringselinu, þannig að nú fær Krummi leik hjá Björk þegar hann kemur til hennar og þegar hann fer til fígúrantsins aftur þá fær hann smá nammi. Pínulítið verið að snúa á hann þannig að hann viti ekki alltaf hvar skemmtilegustu verðlaunin koma. Þetta virkar rosalega vel og er ætlunin að halda svona áfram með hann á milli þess sem hann tekur langar leitir.
Nýju hundarnir eru misjafnir að gerð og stærð :) Ísold var fyrst frekar feimin við fígúrantinn og leitaði mikið til eiganda síns, nú Drífa var ekki lengi að láta líta út fyrir að hann væri hundleiðinlegur og fígúrantinn það skemmtilegasta sem til er ! fyrir rest var hún farin að togast á með dótið og skemmti sér vel. Þarf að auka úthaldið hjá henni , en hún er aðeins 9 mánaða þannig að þetta á allt eftir að koma með tímanum.

Anja er rottweiler og er mjög áhugasöm að hlaupa út til fígúrantsins en þarf að passa að leika ekki of lengi við hana þar sem að úthaldið er ekki mikið ennþá, það þarf bara að vinna í því áfram og mæta vel á æfingar :)

Rökkvi sem er bróðir Ísoldar var einnig frekar feimin við fígúrantinn fyrst til að byrja með en það er allt að koma með mikilli fígúranta vinnu, hann slær vel inn á lykt og það er sama sagan með hann, það þarf bara að mæta vel og æfa vel.

Morris fékk að leita smá frímerki þar sem hann er með hval í eftirdragi þessa dagana.... en auðvitað leysti hann það eins og vanalega...

Sett var upp svæði fyrir Lúkas með 3 fígúröntum og auðvitað rúllaði hann því upp á nokkrum mínútum. Þarf að æfa hann áfram vel, endurtekning endurtekning eins og sagt er á æfingum hjá okkur og styrkja markeringuna sem kemur með æfingunni!

Frábær æfing í góðu veðri og gaman að það séu að aukast áhuginn fyrir hundunum !
Vil jafnframt minna þá sem lesa þetta að ef fólk hefur áhuga á að kynna sér þessa þjálfun nú eða aðstoða okkur á æfingum þá er það vel þegið ! Eins hafa þeir sem eru í björgunarsveit gott af því að þekkja og vita vel hvernig hundarnir vinna ! hægt er að hafa samband á póstfangið mitt hérna fyrir neðan, hringja í mig (Jóhönnu) 8683360 eða skoða á http://www.bhsi.is/
pósturinn minn er johanna_magg@hotmail.com ( fyrir þá sem voru á æfingu í dag senda aldur hunds, nafn og fullt nafn á ykkur :)
mánudagur, júní 08, 2009

1 skilaboð



október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 október 2008 nóvember 2008 mars 2009 apríl 2009 maí 2009 júní 2009