
Blásið var til æfingar í gær á Hellu við Gaddstaðaflatir. Mættir voru nokkrir, þó ekki allir á sama tíma en það gerir ekkert til :)
Mættir voru Björk og Krummi, Drífa og Lúkas, Jóhanna og Morris, Hafdís og Breki og Ingi og Rökkvi.
Æft var í miklu sandroki en við sunnlendingarnir látum það ekki á okkur fá ! Hundarnir stóðu sig vel og er þeim jú nokk sama hvernig viðrar, helst er það Skúli litli skelfir sem finnst svona veður bara ekkert skemmtilegt !
Hundarnir tóku nokkur rennsli og varð sú nýbreytni að Drífa leitaði með Morris fyrir óléttu konuna sem var send heim með samdráttarverki... Morris var fyrst aðeins hissa á því hver væri að senda hann út en svo þegar hann datt í lyktina af fígúrantinum þá var honum slétt sama á hvern hann myndi gelta til að fá dótið sitt !!
Nú annað, ég fékk sendan póst frá Kristínu í Leitarhundum sem spurði hvort að við myndum ekki vilja kíkja á æfingu hjá þeim á morgun, laugardag ?? æfingin verður haldin á Lyngdalsheiði og væri ég mikið til í að kíkja ! hugsa að ég hlaupi ekki mikið en gaman væri að fara og hitta fólkið sem við hittum annars bara í útköllum :)
Mynd dagsins er af Skúla !!