BHSÍ Suðurland

26. apríl 2009

Sumaræfing í blómsturbænum

Haldin var sumaræfing hjá okkur suðurlandsdeildinni á kosningadaginn sjálfan. Mættir voru Hafdís og Breki, Jóhanna og Morris og Björk og Krummi.


Dagurinn var tekinn nokkuð snemma en við byrjuðum um hálf ellefu inni í Reykjadalnum. Sett var upp svæði fyrir Björk og Krumma og var hún send á eftir "pari" sem hugsanlega voru týnd, en þau höfðu ekki skilað sér ááfangastað, en ekkert nánar var vitað um ferðir þeirra. Björk var því send fyrst af stað inn munnann við Grensdal, en þar er fjölfarin gönguleið. Nú þegar ekkert fannst þar hélt Björk áfram sem leið lá í átt að Kömbum. Þar fékk hún frekari upplýsingar um að staðfest væri að einn týndur væri í svæði hjá henni, en þar hafði parið orðið viðskila og konan villst af leið. Nú stuttu seinna tilkynnir Björk um fund og konan var "heil á húfi" henni var fylgt aftur til Byggðar ásamt "víkingasveitinni og lögregluhundinum þeirra" (Magnús hennar Bjarkar og Skúli litli ofurhundur:)


Nú við hin fengum líka rennsli, Breki litli er farinn að sækja laust bit og gengur það vel, Morris fékk langþráða leit og líkaði ekki illa !


Nú eftir æfingu var farið í kosningakaffi í Heiðina en þar beið húskarlinn á heimilinu með vöfflur og bakkelsi :) mikið var rætt um pólitík í tilefni dagsins en allt þó á rólegu nótunum ;)


Fyrirkomulag okkar hérna fyrir sunnan verður þannig að æfingar hjá okkur verða settar hérna inn, þ.e dagsetning á næstu æfingu, því verðum við að fylgjast vel með hérna á síðunni okkar.


Næsta æfing verður haldin laugardaginn 2. maí á Eyrarbakka hist verður klukkan 11:00 við tjaldstæðið á Eyrarbakka.


Mynd dagsins er af undirritaðri og Björk og Krumma á góðum degi í þyrlu landhelgisgæslunnar TF-LÍF. (eitthvað lítið var tekið af myndum á æfingunni þannig að þetta er "reddingin" ;)
sunnudagur, apríl 26, 2009

2 skilaboð



október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 október 2008 nóvember 2008 mars 2009 apríl 2009