Það var ekkert smá ævintýri sem stúlkurnar í BHSÍ suðurland skelltu sér í nú í endann febrúar. Ákveðið var að halda námskeiðshelgi á Ísafirði og auðvitað létum við okkur ekki vanta! sníktir voru styrkir hingað og þangað og voru allir boðnir og búnir að aðstoða okkur við að komast, enda veitti ekki af þar sem búið var að fella báðar námskeiðshelgarnar sem áttu að vera í vetur niður! Jóhanna sníkti styrk hjá sinni sveit og var það samþykkt strax og þökkum við kærlega fyrir það! sömu sögu má segja um FBSH. Nú flugbjörgunarsveitin "momí" eða Gesthús bændur styrktu okkur líka og það er ekkert smá sem þau eru búin að leggja sitt af mörkum fyrir okkur hérna fyrir sunnan :) já þau eru sko frábær ;)
Nú við létum ekki kyrrt liggja þar heldur höfðum við samband við Flugfélag Íslands og spurðum hvort að þeir gætu styrkt ferð okkar og þar var tekið í sama streng, hundarnir flugu frítt!! frábært framtak þar og þökkum við að sjálfsögðu kærlega fyrir það!
Við lentum á Ísafirði á föstudegi og brunað var upp á svæði strax um kvöldið og tekið rennsli! Daginn eftir var ræs snemma og æft allan daginn bæði laugardag og sunnudag.
Eitt teymi frá okkur tók próf og það voru þau Drífa og Lúkas óskum þeim innilega til hamingju! Ester og Jóka tóku líka c-prófið og stóðust þær líka með prýði :)
Við gömlu hundarnir, þ.e.a.s Morris og Krummi fengu sína æfingu og stóðu sig vel eins og alltaf.
Farið var út að borða á laugardagskvöldinu á Súðavík með öllum hópnum og fengum við frábæran mat, ekta djúsí hamborgara og köku í eftirrétt!
Nú Björk og Krummi fóru svo heim seinnipart sunnudags en Drífa og Jóhanna áttu flug daginn eftir sem vildi ekki betur til en svo að heim komust þær ekki fyrr en á miðvikudag ! en það skall á með stórhríð og snjóflóðahætta var víðast hvar um vestfirðina og hús voru rýmd á Bolungarvík, Ísafirði og fleiri bæjum í kring. En það væsti ekki um okkur enda í góðu yfirlæti hjá Beggó og Gest, foreldrum Drífu.
Mynd: Morris og Lúkas lentir á Þingeyri, en ekki var hægt að lenda á Ísafirði vegna veðurs!