Sunnudagsæfing á Hellu

Breki spenntur að fara af stað!
Það mátti segja að það hafi verið margt um manninn á æfingu sem haldin var á Hellu í gær. Það voru mættir hvorki meira né minna en 9 manns og 14 hundar !
Mættir voru
Björk og Krummi
Jóhanna, Morris, Aþena og Skúli
Ingimundur og Elín ásamt Visku, Frosta og Skottu
Dóri og Skuggi sem komu alla leið frá Keflavík !
Snorri og Dr. Kolur
Drífa, Lúkas og Dózer
Hafdís, Bekka og Breki
og Ingibjörg og Píla.
Tekið var ágætlega stórt svæði fyrir gömlu hundana og að sjálfsögðu stóðu þeir sig eins og hetjur. En aðal hetjurnar voru litlu hvolparnir frá Hæl, þau Viska og Breki. Viska er ótrúlega mikil kelirófa sem hleypur á fullu spani til fígúrantsins og hámar í sig lifrarpylsu ! Breki er aðeins meiri gaur og hleypur næstum því alla leið til fígúrantsins :) Planið með hann er að gefa honum nammi þegar hann kemur til fígúrantsins og fá alveg fullt af kjassi :) því að við vitum að þótt þessir hælshundar virki rosa töff þá eru þetta allt eintómar kelirófur ;)

Viska litla á fullri ferð :)