BHSÍ Suðurland

26. október 2008

Æfingar seinustu vikna :)

Við hérna á suðurlandi erum ekkert að stressa okkur á þessu blessaða bloggi en við æfum nú þrátt fyrir að það skili sér ekki alltaf hingað inn.

En það sem hæst ber að nefna er rústaæfing sem ég skipulagði og var haldin núna í október. Mættir voru Ingibjörg og Píla og ég og Morris. Æfingin var alveg frábær ! hún var haldin á Gljúfurárholti í stórum útihúsum sem farið hafa illa í skjálftunum. Til stendur að rífa þessi hús og því var ekkert mál fyrir okkur að koma og æfa okkur. Æfingin var haldin með Hjálparsveit skáta í Hveragerði, Björgunarfélagi Árborgar og slökkvilið Hveragerðis. Mættir voru um 35 manns á æfinguna. 7 manneskjur voru týndar á víð og dreif í rústum og drasli innan í húsinu en 2 brúður voru undir stórum steypubútum sem slökkvilið sá um að bjarga. Nota þurfti glennur við að lyfta þyngstu steypubrotunum og var virkilega gaman að sjá alla þessa viðbragðsaðila sameina krafta sína tæki og tól við að bjarga fólki (og brúðum).
Margt mátti betur fara á þessari æfingu en gekk þó ótrúlega vel miðað við það að þessir aðilar hafa aldrei æft saman áður. Til stendur að halda fyrirlestur bráðlega og aðra æfingu í kjölfarið. Allir félagar BHSÍ eru kvattir til að mæta á fyrirlesturinn og æfinguna sem haldin verður eftir það. Það sem okkur stöllunum fannst virkilega gaman var að vettvangstjórar settu það skýrt fram að hundarnir færu fyrst inn í bygginguna og myndu kalla eftir aðstoð þegar við værum búnar að finna. Þetta gekk eins og áður sagði frábærlega og vorum við búnar að finna alla á innan við klukkutíma. Slökkviliðsmenn ásamt fleiru höfðu á orði hversu ofboðslega gaman væri að fylgjast með hundunum hversu fljótir þeir væru að finna. Alltaf gaman þegar vel gengur :)

Ég og Morris að lokinn æfingu.

Nú í gær var haldin önnur æfing á Hnaus sem er á móts við Bitru. Þar var hvorki meira né minna en 10 hundar mættir ! æft var frá klukkan 1 og fram eftir kaffi. Það komu tveir nýir hundar sem eru virkilega spenntir fyrir starfinu innan BHSÍ og hundarnir eru ekki síður spenntir ! þarna komu þau Kolbrún og Birgir en þau eru með labradortíkina Kolku sem er Skessa 2 ! hún er nákvæmlega eins í útliti og háttum ! og ekki nóg með þá þá er hún með eins hálsól! virkilega efnilegur hundur þar á ferð :) Nú Svandís og Aþena komu líka í fyrsta skipti en Aþena er u.m.þ.b. 4-5 mánaða blendingur af líklega íslenskum, border collie og labrador en Aþena var skilin eftir sem 6 vikna hvolpur á Eyrarbakkavegi og er því ekki vitað hvað hún er gömul! en hún er greinilega í góðum höndum og fannst mjög gaman. Virkilega spennt að hlaupa út til fígúrantsins.

Nú stjarna dagsins var Breki hennar Hafdísar en hann er bara 10 vikna og er ekkert smá flottur ! hann tók sitt fyrsta úthlaup og var eins og sannur Hæls hundur hleypur á fullu spani út og vill fá dótið sitt strax !!! :)

Mættir voru á æfinguna auk nýja liðsins, gömlu sleggjurnar Lúkas og Drífa, Jóhanna og Morris. Auka hundar sem fengu að vera með voru auðvitað Skúli sem finnst snjórinn ekki fyndinn, Dózer sem er ótrúlega efnilegur og komin með geltmarkeringuna alveg á hreint og Greifi blindrahundur, Tinna, eldri systir Kolku og Bekka sem fékk nokkur úthlaup.
Hérna er allur hópurinn, Svandís með Skúla og Aþenu, Drífa með Dózer Lúkas og Greifa, Hafdís með Breka og Bekku Birgir með Kolku og Kolbrún með Tinnu.

Takk öll fyrir frábæra æfingu kveðja Jóhanna.

sunnudagur, október 26, 2008

6 skilaboð



október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008 júlí 2008 október 2008