Æfingamaraþon
Hér hefur verið hálfgert æfingarmaraþon... sérstaklega í kringun landsmótið á Hellu. Ég ætla samt sem áður ekki að fara að telja upp allar æfingarnar heldur fara aðeins yfir hvernig gekk svona á heildina litið. Mætt voru; Björk og Krummi, Drífa og Lúkas, Jóhanna og Drífa, Hafdís og Bekka auk Ingibjargar og Pílu. Lúkas er bara að slá í gegn og stefnir á C-próf í sumar og er bara verulega gaman að því. Við erum farin að láta hann sækja verðlaunin til Drífu og færa þau til fígúrantsins sem er að virka mjög vel. Við erum búin að vera að leika okkur með alskonar tilbrigði af því. Jóhanna er með snilldarhundinn hann Morris og er gaman að sjá hvað öll sú vinna sem lögð hefur verið í þann hund er að skila sér vel. Bekka er líka á góðu róli og alltaf gaman á æfingum hjá okkur þegar þær stöllur sjá sér fært að mæta. Ingibjörg og Píla voru líka heilmikið að æfa með okkur og gengur bara vel þó að hún megi ekki alltaf vera að því að staldra lengi við hjá manni (hehe). Krummi er að leika vesenisbrók og er að vaða á skítugum skónum yfir mömmu sína og því erum við að bakka heilmikið með hann. Það gengur svona upp og ofan... Hann er líka komin í hlíðni 103 heima og skilur ekkert í þessum breytingum öllum.
Þeir sem komust fóru svo á útkallsæfingu um síðustu helgi og væri gaman að fá svolítið að heyra að því. Æfingin var haldin á okkar heimaslóðum eða á hinum fræga ,,Stokkseyrabakka" og var skipulagning í höndum Hafdísar ásamt fleiri góðu fólki.
Takk fyrir Kveðja Björk
fimmtudagur, júlí 17, 2008
1 skilaboð
|
Æfing 30.júní
Æfing var haldinn í Reykjadalnum við Hveragerði síðastliðinn sunnudag. Þar voru mætt; Hafdís og Bekka ásamt Óliver ofurfígúrant, Björk og Krummi, Jóhanna og Morris, Ingibjörg og Píla auk Drífu og Lúkas. Bára litla kom þarna á sína fyrstu æfingu en sú sæta prinsessa er meðlimur í hinum sístækkandi félagsskap - BHSÍ junior. Hafdís og Jóhanna settu upp stórt svæði fyrir hann Krumma og mig. Var það ansi kvikindislegt svæði með mörgum giljum og skriðum en þrátt fyrir það rosalega góð æfing fyrir okkur - takk fyrir þetta stelpur. Þetta var gott A-svæði og var tilkynntur fundur á honum Óliver eftir tæpa 45 mín. leit. Þetta er gott dæmi um hvernig við hjálpumst að við að ná markmiðum okkar. Við hjálpumst að við að gera æfingar sem miðast að þörfum hvers teymis og náum þannig fram þeim árangri sem við sækjumst eftir. Bekka fékk svo stutta æfingu, óséða og leysti það með glans en þar sem hún er enn að jafna sig af eyrnaveseni voru ekki teknar fleiri æfingar með henni. Bróðir hennar hann Lúkas fékk líka sitt rennsli. Drífa stefnir að því að fá hann lengra frá sér og að hann markeri (láti vita að hann hafi fundið) hjá henni. Fyrra rennslið gekk vel en í seinna rennslinu átti hann erfiðar með að markera en áður. Lúkas leysti samt sem áður það verkefni sem fyrir hann var lagt og er virkilega gaman að sjá þau Drífu og Lúkas saman þar sem þau eiga svo gott samband. Ingibjörg og Píla eru að vinna að því að láta hana koma alveg til þess týnda. Við settum því upp æfingar til að stefna að því og tókst það bara vel. Klárlega eru þetta gífulega skemmtilegir fígúrantar þar á ferðinni :) Morris fékk að sjálfsögðu líka æfingu við sitt hæfi og gekk það bara vel. Jóhanna ætlar að vinna að því að láta hann vinna í aðeins lengri tíma þar sem honum gengur stundum erfiðlega með að markera hjá henni þegar hann er orðin þreyttur. Á heildina litið gekk æfingin mjög vel hjá öllum og það er alltaf skemmtilegt að æfa með þessu duglega og skemmtilega fólki.
;) Á döfinni er að vera dugleg við að æfa á meðan á landsmóti hestamanna stendur þar sem margir félagar okkar eru að koma á Hellu á meðan á mótinu stendur. Skemmtilegir tímar framundan ;)
þriðjudagur, júlí 01, 2008
3 skilaboð
|
Sumarnámskeið Breiðavík
Nokkur teymi fóru á sumarnámskeið í Breiðuvík 20-23. júlí. Þar voru mætt Jóhanna og Morris, Hafdís og Bekka auk Björk og Krumma. Veðrið var með besta móti allan tímann þrátt fyrir kaldan vind og ekki skemmdi vestfirsk fegurð fyrir. Mæli með því að sem flestir leggi leið sína á Vestfirðina til að upplifa þessa einstöku fegurð sem þar er og svo fáir þekkja. Gist var á Breiðuvík ýmist inn í húsi eða á tjaldstæðinu í fjallasal og við gullnar strendur. Kunnum við ábúendum Breiðuvíkur og Ingþóri bestu þakkir fyrir gestristnina. Svæðin voru þrjú auk tveggja prófsvæða. Björk og Krummi voru á svæði hjá Auði en vegna ,,prófanna" sá Hermann að mestu um það svæði. Tóti leiðbeindi svo Hafdísi og Bekku auk Jóhönnu og Morris. Auk ,,okkar" leiðbeinanda fengum við þrjá gesti frá Sarda Lakes Bretlandi, David Watt, Mike Blakey og David Benson og aðstoðuðu þeir við þjálfun og dæmdu próf. Ekki er annað hægt að segja en að afraksturinn af þessari ferð hafi verið góð. Hundarnir voru í góðu formi. Morris sýndi snilldartakta og ekki annað hægt að segja að þar sé mikið efni á ferð. Bekka skilaði sínu með ágætum en var ferkar dauf. Það kom svo í ljós eftir ferðina að það var ekki að ástæðulausu þar sem grafið hafði í öðru eyra hennar þar til hljóðhimna sprakk. Ekki stoppaði það hana þó frá því að skila sínu verki og verður gaman að fylgjast með þessari fallegu tík í framtíðinni. Krummi stóð sig vel og var kátur og skemmtilegur að vana. Auk þess að taka nokkur rennsli á svæðinu sínu fengum við að fara á annað prófsvæðið og spreyta okkur þar. Það gekk ágætlega en svæðisvinnan var að þvælast fyrir eigandanum eins og venjulega. Síðasta daginn var þó greinilega eitthvað að angra hann á aftanverðu lærinu. Eftir að heim var komið var ljóst að eitthvað var að og farið var til dýralæknis. Hann var þá settur á sýklalyf þar sem það komí ljós að það var kýli á lærinu sem komist hafð illt í og var að angra gæjann eitthvað. Eftir námskeiðið hafði þó heldur betur bæst í safnið hjá okkar og tóku Jóhanna og Morris auk Hafdísar og Bekki bæði C- próf og stóðust það með glans. Til hamingju stelpur!!! Fyrirlestrar voru bæði á föstudags- og laugardagskvöld. Á föstudeginum flutti Tóti fyrirlestur um útkallshundinn og þau verkefnum sem þeir glíma við. Var það verulega athyglisverður fyrirlestur og kunnum við Tóta bestu þakkir fyrir áhugaverðan og fræðandi fyrirlestur. Englendingarnir héldu svo seinni fyrirlesturinn sem fjallaði um verkefni þeirra og annara á Sarda Lakes svæðinu í Englandi. Var það áhugaverður og skemmtilegur fyrirlestur sem skilaði miklu. Auk þess að æfa og skemmta sér í frábærum félagsskap var farið á Látrabjarg og í Keflavík þar sem við fengum fyrirlestur um sögu staðarins frá Þresti og Ólínu. Takk fyrir það !!! Brottför var svo á sunnudeginum og var ferðin stytt aðeins með því að taka ferjuna til baka yfir Breiðafjörð. Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg við að gera þetta námskeið að veruleika. Sérstakar þakkir fær Steinar hennar Jóhönnu - mennska vekjaraklukkan og ofurfígúrant. Hlakka til að sjá ykkur öll á næsta námskeiði á Gufuskálum.
Takk takk - kveðja Björk
þriðjudagur, júlí 01, 2008
0 skilaboð
október 2007
nóvember 2007
janúar 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008
|