BHSÍ Suðurland

11. júní 2008


Drífa, Ester og Helga ásamt Bellu


Ákvað að setja inn nokkrar myndir til að lífga aðeins upp á síðuna til að lífga aðeins upp á hana. Myndin hér að ofan er frá annari útkallsæfingunni og neðri myndinn er af henni Jóhönnu og Morris þegar við tókum smá umhverfisæfingu á Hvolsvelli síðastliðin vetur.


miðvikudagur, júní 11, 2008

0 skilaboð




Útkallsæfing

Krummi á góðri stundu

Útkallsæfing var haldinn sunnudaginn 8. júní á suðvesturlandi. Nick sá um æfinguna sem tókst vel í alla staði. Mætt voru; Nick, Ólína og Hafdís sem lágu úti sem fígúrantar. Teymin sem tóku þátt voru; Eyþór og Prímó, Auður og Skíma, Björk og Krummi auk Vals og Funa. Ingimundur sá svo um að vera tengiliður þar á milli.
Við fengum boð um að mæta á litlu kaffistofuna klukkan tíu á sunnudagsmorgunin og áttum að tilkynna okkur á tetra. Það eitt var nú heljarinnar æfing hjá einhverjum sem kann takmarkað á þessa annars ágætis græju. Þegar á staðinn var komin var okkur úthlutað kort og gps-punktar með svæðinu sem leita átti. Við skiptum því svo með okkur og lögðum á stað á staðinn. Fengum þær upplýsingar að fimm væru týndir og hefðu þeir að öllum líkindum verið að reyna að komast á litlu kaffistofuna þegar þeir týndust.
Svæðið sem okkur Krumma var úthlutað var frekar mjótt og langt og eitthvað hafði klikkað við að setja inn gps punktana þar sem mitt svæði leit út eins og þríhyrningur á gpstækinu (undarlegt...). Þetta var verulega lærdómsríkt þar sem ég varð strax verulega villt inn á svæðinu og komst að því að ég kann engan veginn að ganga eftir gps-tæki. En við gengum, og gengum og gengum og fundum ekki neitt. Það er líka verulega lærdómsríkt að leita í tvo tíma og finna ekki neitt. Eftir tvo tíma var svo tilkynnt að allir væru fundnir og hófst þá löng ganga til baka þar semvið vorum þá loksins komin efst í svæðið. Það var þó bót í máli að það var enginn inn á mínu svæði og því ekki von að okkur gengi erfiðlega að finna einhvern. Krummi fékk þó að finna þegar við komum til baka þar sem sett var upp smá æfing - svona í sárabætur. Það gekk bara vel og maður var meira en lítið sáttur eftir þetta þrátt fyrir erfiðleikana. Nú veit maður hvar skóinn kreppir. Hafdís og Bekka tóku einnig stutta æfingu eftir leitina og gekk þar allt samkvæmt áætlun. Verulega gaman að sjá framfarirnar hjá þeim stöllum.
Við Hafdís vorum sammála um að hér eftir yrðum við að vera duglegri að æfa með gps og verður tekið á þeim málum í framtíðinni.

Enduðum svo á heitu súkkulaði og gúmmilaði á litlu kaffistofunni og hittum þar fyrir eldri hjón sem Ingimundur titlaði sem frumkvöðla BHSÍ. Fengum nokkrar sögur með veitingunum frá fyrri tíma - verulega gaman að því :)

Þökkum fyrir lærdómsríkan og skemmtilegan dag.
Sjáumst seinna




miðvikudagur, júní 11, 2008

0 skilaboð




Æfingar með leiðbeinanda

Undanfarna tvo mánuði höfum við hjá BHSI Suðurlandi æft einu sinni í mánuði með leiðbeinanda. Þar sem við búum ekki við þá gæfu að hafa leiðbeinanda á okkar svæði var gripið til þess ráðs að flytja þá einfaldlega inn. Því miður hafa þeir þó allir sloppið aftur til baka þannig að við höldum áfram að lokka þá til okkar með gilliboðum.

Í apríl komu Tóti og Ester og var æfingin þá haldin við bakka Rangár eystri. Þar var eintóm mýrardrulla sem skemmtilegt var að vaða. Sérstaklega fyrir óléttar konur. Þar voru mætt Björk og Krummi, Drífa og Lúkas, Helga Sif og Bella auk Tóta og Ester sem komu auðvitað með Jóku og Þrym í BHSÍ kerrunni.

Æfingin var að vonum skemmtileg og lærdómsrík. Lúkas hafði á æfingu helginni áður sýnt snilldartakta en átti þarna í erfiðleikum með að fara næginlega langt frá henni mömmu sinni (enda ólétt og engin til að passa upp á hana nema hann). Hann skilaði samt sinni æfingu og voru lagðar línurnar af áframhaldandi æfingarplani fyrir herramanninn.
Krummi tók lengri leit og skilaði sínu með ágætum. Honum tóks náttúrulega að hrista aðeins upp í fígúrantinum okkar sem hjálpaði okkur ómetanlega - það var hann Jón úr Björgunarsveitinni Dagrenningu. Okkar stefna er að æfa meira svæðisvinnu og stærra svæði. Svo er líka verið að vinna að því að koma Krummaling og eigandanum í form :/
Bella hennar Helgu er bráðefnileg og geltir eins og hershöfðingi úti hjá fígúrantinum. Þar þarf að æfa, æfa og aftur æfa til að byggja góðan grunn. Efnileg tík þar á ferðinni.
Þrymur tók spor sem lagt var fyrir hann og nokkur útköll og Jóka fékk líka verkefni við hæfi. Verulega gaman að fylgjast með þeim skötulhjúum (hvort sem talað er um hunda eða menn).

Önnur útkallsæfing var svo haldinn í maí við bakka Rangár ytri. Þar voru mætt Drífa og Lúkas, Jóhanna og Morris, Hafdís og Bekka og Björk og Krummi. Leiðbeinandi að þessu sinni var hann Ingimundur. Örn Vikar í BHSÍ junior var auðvitað líka á staðnum auk mömmu Drífu sem æfði sig í ömmuhlutverkinu með því að líta eftir litla manninum (Takk fyrir það).
Við byrjuðum á æfingum fyrir Bekku og Morris með einn óséðan. Það gekk mjög vel og kláruðu bæði teymin það með sóma þrátt fyrir að þurfa að berjast við Kjóa til að komast að fígúrantinum. Krummi og Björk fengu að spreyta sig á stærra svæði með einn tíndan og reyndi þá á svæðisvinnu. Hundurinn stóð sig með sóma en eigandinn þarf að æfa sig aðeins betur (hehemm). Að lokum var tekið stutt æfing fyrir Lúkas áður en við fluttum okkur yfir á annað svæði. Þar fengu öll teymin að spreyta sig á lengri æfingum og tókst það í alla staði vel. Efnilegir hundar á ferð hér á Suðurlandinu og ég er ekki frá því að Frosti hafi verið að reyna að sannfæra Inga um að flytja bara. Eftir æfinguna var svo stefnan tekin á Hvolsvöll og haldin grillveisla hjá Björk.

Næst æfing verður svo næstkomandi sunnudag í Hveragerði.
Við þökkum öllum sem hafa komið að þessum æfingum kærlega fyrir hjálpina og hvetjum alla til að kíkja við hjá okkur.
miðvikudagur, júní 11, 2008

0 skilaboð



október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008 maí 2008 júní 2008