Bhsí suðurland hélt æfingu sunnudaginn eins og áður sagði í blíðskaparveðri, rigningu sem var að vísu bara á köflum og rokið stóð fyrir sínu! en það er nú ágætt að leita þegar það er rok.
Mættar voru morgunhressar klukkan 10 á sunnudagsmorgni :
Hafdís og Bekka
Björk og Krummi
Jóhanna og Morris

Björk hress í rigningunni !
Fórum í dalinn fyrir ofan Hveragerði og æfðum stíft. Fengum með okkur tvo eldhressa fígúranta (sá sem að þykist vera týndur) þá Steinar sem að vísu er oftast notaður á æfingum og námskeiðum og bróðir hanns Reynir Þór sem var að koma í fyrsta skipti og var ráðinn á staðnum! alveg ómetanlegt að fá fólk til að hjálpa okkur við æfingar. T'iminn nýtist mikið betur fyrir okkur hundafólkið og getum við þarafleiðandi gert fleiri og stærri æfingar.
Takk kærlega fyrir þetta strákar! :)
Nú hundarnir hafa komið vel undan vetri. Bekka er flott, hún er aðeins rólegri heldur en starfsbræður hennar Morris og Krummi en skilar sínum æfingum vel.
Krummi er alltaf í banastuði og Björk líka eins og flestir vita.
Morris er í góðum málum og getur ekki beðið eftir að fá að fara í próf.
Allt frábærir hundar þarna á ferð og vorum við stöllur sammála um það að okkur hlakkar mikið til sumarsins en fyrsta sumarnámskeið ársins verður haldið í Bláfjöllum nú um hvítasunnuhelgina. Ef einhverjum langar að sjá starfið hjá okkur og hjálpa okkur, þ.e.a.s vera fígúrant (þykjast vera týndur) má hann endilega hafa samband. Verið velkomin! :)
Eftir nokkrar stífar æfingar og labb fram og aftur um dalinn var tekin stutt hlýðniæfing. Það er alltaf gaman að sjá Krumma í hlýðniæfingum og skemmtum við okkur öll vel ;)
Eftir smá æfingu í að vera stillt og prúð var bara að skella sér í sund! og fannst sumum skemmtilegra en öðrum að busla í vatni.

talið frá vinstri:Krummi, Morris, Bekka
Læt nokkrar myndir fylgja með og myndband sem við tókum af Morris skella sér í hylinn. !!
sjá Morris hér:
http://www.youtube.com/watch?v=S7rZVandZxc
Takk fyrir frábæra æfingu, kveðja Jóhanna.