BHSÍ Suðurland

10. apríl 2008

Vetrarnámskeið Vestfjörðum

Það er komin tími á það að skrifa aðeins um síðasta vetrarnámskeið sem haldið var á Steingrímsfjarðarheiði dagana 8. til 14. mars. Þáttakendur ásamt rösku liði fígúranta héldu til á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Þökkum við starfsfólki þar kærlega fyrir gestrisnina og góðan mat. Þeir sem komu með af suðurlandsgenginu voru Björk og Krummi, Jóhanna og Morris, Hafdís og Bekka og síðast en ekki síst Rakel og Dímon. Gullkálfurinn sá um að flytja okkur Jóhönnu á svæðið og stóð sig vel á köflum. Þrátt fyrir yndislegt vestfirskt vegakerfi og töluverða vegalengd á svæði var margt að þakka fyrir. Veðrið var með ágætum, félagskapurinn frábær og margt að læra af leiðbeinendum bæði íslenskum og norskum. Dagskráin var að sjálfsögðu þéttsetinn bæði kvölds og morgna og var bæði gagn og gaman að þeim fyrirlestrum sem fluttir voru. Færum við fyrirlesurum og leiðbeinendum bestu þakkir fyrir skemmtilega og fróðlega tíma. Frábæra, náttúrulega sundlaugin á Reykjanesi var vel sótt á hverju kvöldi og oft glatt á hjalla. Enda ekki annað hægt þegar svona margt skemmtilegt fólk kemur saman á svo afviknum stað. Eftir þrotlausar æfingar og skemmtun var svo árangri erfiðinsis fagnað á stórkostlegu lokakvöldi. Óhætt er að segja að þar hafi menn verið upp á sitt besta og mikið hlegið og gantast. Hið stórkostlega mynband sem Suðurlandsdeildin kom með var að vonum vel tekið auk þess sem Björk bjargráður fór yfir öryggisatriði.
Árangur Suðurlandsdeildarinnar var mjög góður þar sem allir þeir sem þangað fóru náðu sínum markmiðum. Árangur af vetrarnámskeiði 2008 var því eftirfarandi:

Jóhann og Morris C-gráða
Hafdís og Bekka C- gráða
Rakel og Dímon C- gráða
Björk og Krummi B- gráða

Allir hundarnir stóðu sig með prýði og sumir leituðu meirisegja á tveim svæðum í einu (hehe). Við hlökkum að vonum til næsta sumarnámskeiðs og höldum áfram að æfa bæði menn og hunda.


Að lokum langar mig að benda á grein/viðtal sem birtist í glugganum í dag og fjallar um þetta stórskemmtilega vetrarnámskeið.

http://www.sudurglugginn.is/Vefsidan/data/MediaArchive/files/Blodin/14.tbl.10.04.2008(2).pdf
fimmtudagur, apríl 10, 2008

4 skilaboð



október 2007 nóvember 2007 janúar 2008 apríl 2008