Jæja, þá er árið 2008 gengið í garð og er fyrsta námskeiðið í snjóflóðaleit á dagskrá nú um helgina og má með sanni segja að við félagarnir í BHSÍ hérna á suðurlandsundirlendinu ætlum ekki að láta okkar eftir liggja. Við sem förum hérna frá okkar deild eru:
Hafdís og Bekka
Drífa og Lúkas
Jóhanna og Morris
Rakel og Dímon
Eitthvað af liðinu stefnir á að taka próf og koma fréttir af því hérna seinna. Hörku skráning var á námskeiðið en um 50 manns ætla að mæta upp á jökulinn, bæði fólk með hund og hundlausir aðstoðarmenn. En Hafdís kemur með nokkra fullfríska með sér og þökkum við kærlega fyrir það :)
Vetrardagskráin innan BHSÍ er ansi þétt og eru helgarnámskeið einu sinni í mánuði og í mars verður haldið vikunámskeið í snjóflóðaleit þannig að það er nóg að gera.
Fyrirsæta að þessu sinni er Frosti en myndin er tekin á Snæfellsjökli fyrir ári síðan. Vonandi verður jafn gott veður :D