30. október 2007
|
Rústanámskeið á Gufuskálum
Fríður hópur sunnlendinga hélt á rústabjörgunarnámskeið á Gufuskálum um helgina. Mættar voru frá Suðurlandinu Drífa og Lúkas, Rakel og Dímon, Björk og Krummi og Jóhanna og Morris.
Námskeiðið var í einu orði sagt: frábært! Fenginn var til liðs við okkur hann Arne Andreasen en hann er leiðbeinandi í NRH (Norske Redningshunder) sem er björgunarhundasveit í Noregi. Það var virkilega gaman að hlýða á fyrirlestrana hjá honum sem og þegar hann leiðbeindi manni úti í svæðinu sjálfu. Arne er einnig meðlimur í alþjóðasveitinni en hann fór m.a með þeim til Bam í Íran árið 2003 þegar jarðskálftarnir dundu þar yfir, en þá létust um 20.000 manns. Það var fróðlegt að heyra hann lýsa þeim leiðangri en hann fór þangað með schaffer hundinum sínum Ludvik :)
Hundarnir fengu þarna aðeins öðruvísi þjálfun heldur en þeir eru vanir og höfðu allir gagn og gaman af. Æft var í yfirgefnu húsi og var virkilega gaman og skemmtileg tilbreyting að æfa inni í húsi en ekki út um fjöll og firnindi ! Æft var á rústasvæðinu á Gufuskálum og reyndi það virkilega á en allir hundarnir leystu verkefnin eins og best var á kosið! :)
Eins og áður sagði, virkilega frábær helgi takk fyrir okkur ! :)
Myndir dagsins er af Drífu og Morris á góðri stund og Lúkasi upprennandi rústaleitarhundi :)

Ég ætla að taka að mér æfingu á miðvikudaginn og stefnt verður að hafa umhverfisþjálfun og sitt lítið af hverju. Æfingin verður nánar auglýst síðar um hvar og hvenær hún verður :)
þriðjudagur, október 30, 2007
6 skilaboð
|
22. október 2007
|
Æfing sunnudaginn 21 oktober
Æfingin var að þessu sinni á Eyrarbakka. Guðjón Smári átti að sjá um æfinguna en þar sem hann forfallaðist og allir sem ég náði í ætluðu ekki að koma, nema Sigurbjörn, þá ákvað ág að hún skildi vera á Bakkanum. Sigurbjörn frá Hveragerði mætti með hana Heklu sína og ég með hana Bekku. Það mættu tveir strákar úr Björgunarsveitinni á Eyrarbakka og voru fígúrantar fyrir okkur og gekk æfingin mjög vel. Gott veður og gaman. Annars ætla strákarnir í ungliðadeildinni á Bakkanum að koma oftar með okkur á æfingar, þeim fannst þetta bara gaman.
Kveðja Hafdís
mánudagur, október 22, 2007
4 skilaboð
|
18. október 2007
|
Æfing 17 oktober.
Það var bara fjölmenni á æfingu í gærkveldi. Þeir sem létu sjá sig voru: Rakel-Dímon, Haukur-Bella, Björk-Krummi, Jóhanna-Morris og Hafdís-Bekka. Við hittumst á Bitru og eins og vanalega þegar maður kemur þangað fær maður kaffi . Alltaf sömu liðlegheitin og gleðin á þeim bænum. Skíðan fórum við að Hnaus sem ég held að sé afar fallegur staður en þar sem við hittumst kl: 19:30 var komið myrkur svo útsýnið var ekkert. Vonandi æfum við þar eitthvern tímann í dagsbirtu. Hundarnir voru allir mjög ánægðir með að komast á æfingu og sér maður framför hjá þeim öllum. Allir unghundarnir eru að koma mjög áhugasamir inn og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Ég hlakka til næstu æfingar, þetta er svo óskaplega gaman. Kveðja Hafdís
fimmtudagur, október 18, 2007
3 skilaboð
|
15. október 2007
|
Sunnudagur 14 oktober
Það var hörku stuð á æfingu í gær. Mæting var á Hellu hjá Olís sjoppunni. Þeir sem mættu voru Drífa-Lúkas og Hafdís - Bekka. Þær stöllur ákváðu ( með samþykki Bekku og Lúkasar) að bruna bara á æfingu hjá þeim í Reykjavík því æfingin var rétt við Litlu kaffistofuna. Þannig að æfingin endaði fjölmenn og með leiðbeinanda sem var hann Tóti. Fengum við ýmis góð ráð hjá honum sem endra nær. Takk fyrir það. Gengið úr Reykjavík tók vel á móti okkur en svo enduðum við í Litlu kaffistofunni í kakói og rjómapönnuköku.
Kveðja Hafdís
mánudagur, október 15, 2007
7 skilaboð
|
11. október 2007
|
Æfing 10 oktober
Miðvikudaginn 10 oktober hittumst við á Gaddstaðaflötum. Æfingin var fámenn en góðmenn. Það voru bara Drífa-Lúkas og Hafdís-Bekka. En við lok æfingar komu Rakel-Dímon. Æfingin gekk vel og höfðu hundarnir okkar mikið út úr henni. Þau systkynin eru að koma til, full af áhuga og virkilega gaman að vinna með þeim. Vonandi verður betri mæting á sunnudaginn. Kveðja Hafdís
fimmtudagur, október 11, 2007
5 skilaboð
|
8. október 2007
|
Æfing sunnudaginn 7 oktober
Æfing var á sunnudaginn á Eyrarbakka. Mættir voru: Nick og Skessa, Snorri og Kolur, Anna og Kópur,Sólveig og Salka, Björk og Krummi, Haukur og Bella, Sveinbjörn og Hekla, Hafdís og Bekka. Tveir fígurantar aðstoðuðu okkur þeir Tryggvi og Ægir og eiga þeir miklar þakkir skilið, frábærir fígúruantar. Við hittumst á tjaldstæðinu á Eyrarbakka og gerðum stuttar æfingar fram á hádegi. Þá var farið og snædd súpa og brauð og undirbúningur fyrir leit byrjaði. Eftir hádegi fréttum við 2 strákum sem höfðu týnst í fjörunni hjá Eyrarbakka. Sem betur fer voru nokkur leitarteymi á staðnum og fundurst strákarnir heilir á húfi. Kveðja Hafdís
mánudagur, október 08, 2007
0 skilaboð
|
4. október 2007
|
Æfing
Æfing var hjá okkur í Bhsí Suðurlandi í gær miðvikudag. Mættir kvoru : Hafdís, Drífa, Björk, Haukur, Jóhanna og Dímon. Æfðum við hlýðni og var gaman að sjá hvað hundarnir okkar eru góðir og hlýðnir. Við höfðum góðan þjálfara sem er hún Drífa okkar.
Kv Hafdís
fimmtudagur, október 04, 2007
0 skilaboð
október 2007
nóvember 2007
|